Golf

Karen: Mikill munur á Evrópumótaröðinni og LPGA

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ólafía með fjölskyldumeðlimum og stuðningsfólki í Flórída í gær.
Ólafía með fjölskyldumeðlimum og stuðningsfólki í Flórída í gær. mynd/lpga
„Þetta er rosalegur árangur og ég er ekki hissa á því að hún skildi fara alla leið,“ segir Karen Sævarsdóttir golfsérfræðingur um Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur sem endurskrifaði íslenska golfsögu í gær.

Þá tryggði Ólafía sér þátttökurétt á LPGA-mótaröðinni sem er sterkasta mótaröð heims. Þar spila allar þær bestu. Ólafía varð í öðru sæti á lokaúrtökumótinu.

Sjá einnig: Maður þarf að vera ótrúlega sterkur

„Að Ólafía hafi samt gert þetta með svona miklum stæl kom mér á óvart. Ég var svo innilega að vonast eftir því að hún yrði í topp 50 á mótinu. Ég sá fyrir mér að það yrði barátta að komast í topp 70 en hún fór létt með þetta. Þetta er ótrúlegt og algjör draumur.“

Það hafa margir kylfingar gert margar tilraunir til þess að komast inn án árangurs. Það sem gerir árangur Ólafíu enn merkilegri er að hún skildi fljúga inn með stæl í fyrstu tilraun.

„Hún er að keppa þarna við stelpur sem eru góðar í dag og margar öflugar sem hafa verið að í tugi ára. Ég veit um margar sem hafa reynt lengi og gengið illa.“

Sjá einnig: Ólafía Þórunn kom út í mínus

Karen þekkir vel til í þessum heimi og hefur lýst mikið af kvennagolfi á Golfstöðinni. Hversu mikill munu er á evrópsku mótaröðinni og LPGA?

„Það er þrælmikill munur. Beth Allen, sem komst líka áfram núna, varð stigameistari á Evrópumótaröðinni í ár. Hún er í númer 63 í heiminum og það segir mikið um muninn. Mig skortir hreinlega lýsingarorð til að lýsa því hvað þetta er svakalegt hjá Ólafíu,“ segir Karen sem er enn að ná lendingu hreinlega eftir að hafa fylgst spennt með Ólafíu. Þess má geta að Allen var þremur höggum á eftir Ólafíu á mótinu.

„Mel Reid, sem er í smá uppáhaldi hjá mér, varð fjórum höggum á eftir Ólafíu. Hún hefur verið á Evrópumótaröðinni í tíu ár en hefur aldrei náð fullum rétti á LPGA-mótaröðinni. Hún er númer 140 í heiminum og spilað tvisvar í Solheim-bikarnum sem er eins og Ryderinn.

„Ef við kíkjum á Norðurlöndin þá eru norskar stelpur þarna en engin finnsk til að mynda. Ólafía er kominn í topp tíu í Skandinavíu og allur heimurinn er eftir.“



Uppgangur okkar kona hefur verið ótrúlegur en hvað getur hún eiginlega gert í framhaldinu?

„Henni eru allir vegir færir. Tala nú ekki um ef hún heldur áfram að spila svona. Hún þarf að muna hvernig hún undirbjó sig og hvernig hún komst á þennan stað. Hún þarf að þekkja sinn stað og finna hann áfram. Það geta margir íþróttamenn átt frábæran dag en að gera það ítrekað er kúnstin. Hún er að gera það núna og þarf að halda því áfram. Ég held hún geti það.“


Tengdar fréttir

LPGA-tímabilið hjá Ólafíu hefst á Bahamaeyjum

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, tryggði sér þátttökurétt á LPGA-mótaröðinni í golfi, sterkustu atvinnumannamótaröð kvenna í dag fyrst allra íslenskra kvenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×