Sjónvarpsstjarnan Kim Kardashian, 31 árs, og systur hennar hafa sett á markað nýja undirfatalínu í samvinnu við Sears verslunarkeðjuna.
Kim heldur aðdáendum sínum við efnið en hún setti mynd af sér og systrum sínum, Khloe og Kourtney, á Twitter síðuna sína um helgina þar sem þær stilla sér upp á nærfötunum.
Meðfylgjandi má sjá umrædda mynd sem og myndir af Kim og kærasta hennar, Kanye West heimsækja Selfridge verslun.