Lífið

Kardashian-systur veittu Brown enga virðingu

Systurnar léku sér í snjallsímanum.
Systurnar léku sér í snjallsímanum. mynd/skjáskot
Kim Kardashian og hálfsystur hennar eru nú að verða fyrir barðinu á reiðum notendum samfélagsmiðla eftir að sást til þeirra í símanum á meðan einnar mínútu þagnar til minningar Micheal Brown stóð yfir.

Rapparinn Common var á sviðinu að veita verðlaun fyrir besta tónlistarmyndbandið þegar hann bað áhorfendur að hafa þögn í eina mínútu til þess að minnast hins unga Brown sem var skotinn til bana af lögregluþjóni í Ferguson, Missouri.

Hip-hop hefur alltaf verið rödd andspyrnunnar, sagði rapparinn á tónlistarverðlaununum. Ég vil að við höfum öll þögn í eina mínútu til þess að minnast Mike Brown og biðja fyrir friði í þessu landi og heiminum öllum.



Það sló þögn á salinn og myndavélin færðist yfir á áhorfendur, mátti þar til dæmis sjá tónlistarmanninn Snoop Dogg loka augunum og halda uppi friðarmerkinu.

Hinsvegar þegar myndavélin færist yfir á fremstu röðina þar sem Kardashian-systur sátu mátti sjá þær allar í símanum sínum að veita minningarathöfninni enga virðingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×