Lífið

Kanye West tilkynnti um forsetaframboð árið 2020

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kanye West fór mikinn í nótt.
Kanye West fór mikinn í nótt. vísir/getty
Tónlistarmaðurinn Kanye West ætlar að bjóða sig fram sem forseti Bandaríkjanna árið 2020 en kappinn tilkynnti um þetta á MTV tónlistarmyndbandahátíðinni í gær í Los Angeles.

West fékk Vanguard verðlaunin á hátíðinni í gær en það eru ein virtustu verðlaun MTV og fá listamenn þau fyrir ævistarf sitt í þágu tónlistarinnar og myndbandagerð.

Það fór vel á því að Taylor Swift afhenti West verðlaunin en það er löngu orðið frægt þegar Kanye fór upp á svið á sínum tíma og truflaði Swift þegar hún tók á móti sínum verðlaunum.

„Ég hef ákveðið að bjóða mig fram sem forseti Bandaríkjanna,“ sagði West í gær. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×