Innlent

Kannabisverksmiðja á Spáni: Íslendingarnir handteknir í janúar og febrúar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Mynd sem tekin var í verksmiðjunni.
Mynd sem tekin var í verksmiðjunni. mynd/spænska þjóðvarnarliðið
Íslendingarnir þrír sem handteknir voru í aðgerðum spænska þjóðvarnarliðsins vegna háþróaðrar kannabisverksmiðju í Molina de Segura eru ekki taldir höfuðpaurar glæpasamtaka sem standa að baki verksmiðjunni.

 

Þjóðvarnarliðið telur Íslendingana þó nátengda samtökunum þar sem tveir þeirra hafi séð um að flytja efnin úr landi en einn 58 ára gamall Íslendingur er talinn hafa leigt húsnæðið þar sem verksmiðjan var.

Samkvæmt upplýsingafulltrúa þjóðvarnarliðsins voru tveir Íslendinganna handteknir í janúar á þessu ári þegar þeir voru á leiðinni frá Spáni á bíl. Í febrúar var svo þriðji Íslendingurinn, leigjandi verksmiðjunnar, handtekinn á flugvellinum í Alicante á leiðinni til Íslands.

Rannsókn nýlokið

Að sögn upplýsingafulltrúans eru Hollendingarnir sjö sem handteknir voru í tengslum við málið taldir vera þeir sem stýra glæpasamtökunum. Í því hafi meðal annars falist að stýra framleiðslunni í verksmiðjunni og skipuleggja flutning á fíkniefnunum frá Spáni til Hollands. Rannsókn á málinu er nýlokið en fyrst var greint frá málinu í spænskum fjölmiðlum fyrir viku.

Spænska þjóðvarnarliðið vildi hvorki gefa upp nöfn Íslendinganna né hvort að þeir væru í gæsluvarðhaldi eða hefði verið sleppt.

Rafmagnsnotkun kom upp um starfsemina

Kannabisverksmiðjan er metin á um eina milljón evra, eða rúmlega 140 milljónir króna. Í henni fundust hátt í sex þúsund kannabisplöntur sem flytja átti til Hollands.

Í verksmiðjunni mátti finna mikið af tækjabúnaði; kælikerfi, ljósum og vökvunartækjum, og komu tæknifræðingar og landbúnaðarsérfræðingar að hönnun hennar. Lögregla telur að um fjársterkan og skipulagðan fíkniefnahring sé að ræða.

Gróðurhúsið var í iðnaðarhverfi í útjaðri Molina de Segura, norðan við Murcia. Lögregla komst á snoðir um verksmiðjuna eftir að kvartanir tóku að berast um óreglu og truflanir á rafmagni frá nærliggjandi fyrirtækjum. Í ljós kom að glæpasamtökin höfðu sótt sér rafmagnið með ólöglegum hætti.


Tengdar fréttir

Íslendingar gripnir í fíkniefnarassíu á Spáni

Lögregla á Spáni handtók ellefu manns í tengslum við umfangsmikla kannabisræktun í bænum Molina de Segura. Hollendingar og Íslendingar stóðu að ræktuninni. Mánaðarlegt söluandvirði er sagt nema um 30 milljörðum króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×