Erlent

Kanna hversu mörgum kosningaloforðum Trump hefur framfylgt

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti. Vísir/AFP
Á fréttavef DR - Danska ríkisútvarpsins - hafa kosningaloforð Donald Trump, Bandaríkjaforseta, verið tekin saman og hversu mörg loforð hafi verið efnd á þeim hundrað dögum sem forsetinn hefur verið í embætti.

Forsetinn setti fram tuttugu og átta loforð þegar hann var í kosningabaráttu og skrifaði undir samning við bandarísku þjóðina að efna þessi loforð.

Af þessum 28 loforðum hafa fimm verið efnd. Að hætta við bann Obama og leyfa framkvæmdir á Keystone olíuleiðslunum, ævilangt bann starfsmanna Hvíta hússins að starfa fyrir útlenskar ríkisstjórnir og fimm ára bann að starfa með þrýstihópum eftir ráðningu þeirra, að Bandaríkin hætti viðskiptum við Kyrrahafsþjóðirnar og kjósa staðgengil fyrir Scalia hæstaréttardómara.

Sex loforð eru í vinnslu, til að mynda að hætta takmörkunum í iðnaði, hætta fjárframlögum til loftlagsverkefna, flytja burt meira en tvær milljónir ólöglegra innflytjenda úr landi og byggja upp herinn.

Átta loforð hafa verið sett á bið, til að mynda múrinn sem á að reisa við landamæri Mexíkó og að leggja niður Obamacare.

Dregið hefur verið úr fjórum loforðum. Til dæmis verður skólaval barna ekki gert alveg frjálst eins og loforðið sagði til um.

Hætt hefur verið við fimm loforð. Það er ráðningarbann á opinbera starfsmenn en það féll úr gildi eftir nítíu daga setu Trump í embætti.

Hætt hefur verið við að fella allar óstjórnarskrárbundnar ákvarðanir Obama úr gildi enda enginn gjörningur að efna slíkt loforð.

Trump hefur ekkert minnst á loforð sín um að takmarka lengd þingmennsku og að útlenskir þrýstihópar megi ekki styðja kosningarbaráttu í Bandaríkjunum. Og í fimmta lagi hefur Trump opinberlega sagst hafa skipt um skoðun um að Kína verði formlega stimplað sem land sem handstýrir gjaldmiðli sínum til að veikja dollarann. Enda þykir það ljóst að Kínverjar hafi hætt allri slíkri iðju. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×