Körfubolti

Kanínurnar aftur á sigurbraut

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Auk þess að stýra Svendborg er Arnar Guðjónsson aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins.
Auk þess að stýra Svendborg er Arnar Guðjónsson aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins. vísir/vilhelm
Svendborg Rabbits komst aftur á sigurbraut er liðið vann Hörsholm 79ers, 67-74, í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Fyrir leikinn í kvöld voru Kanínurnar búnar að tapa þremur af síðustu fjórum leikjum sínum. Sigurinn í kvöld var því kærkominn fyrir Arnar Guðjónsson, þjálfara Svendborg.

Kanínurnar eru í 4. sæti deildarinnar með 12 stig eftir 11 leiki. Liðið hefur unnið sex leiki og tapað fimm.

Axel Kárason hafði hægt um sig í liði Svendborg í kvöld; skoraði aðeins eitt stig og tók tvö fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×