Körfubolti

Kanínur Craigs farnar í sumarfrí

Pedersen í rauðu.
Pedersen í rauðu. vísir/andri
Lið íslenska landsliðsþjálfarans í körfubolta, Craig Pedersen, er farið í sumarfrí.

Lið hans, Svendborg Rabbits, sótti þá Horsens heim í oddaleik um laust sæti í úrslitaeinvígi danska körfuboltans.

Því miður fyrir Craig komst hans lið aldrei almennilega í gang og tapaði stórt, 87-71.

Pedersen getur því farið að einbeita sér að því að undirbúa íslenska landsliðið fyrir EM næsta haust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×