Kane kom Englandi til bjargar á ögurstundu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Harry Kane fagnar sigurmarkinu í kvöld.
Harry Kane fagnar sigurmarkinu í kvöld. Vísir/Getty
Harry Kane reyndist hetja Englendinga er hann skoraði sigurmark liðsins í uppbótartíma í 2-1 sigri á Túnis í fyrstu umferð G-riðils á HM í knattspyrnu.

Englendingar eru því komnir með þrjú stig eins og Belgar en Túnis og Panama eru enn án stiga. England spilar næst við Panama og Túnis spilar við Belgíu.

Englendingarnir byrjuðu af miklum krafti. Þeir sóttu án afláts og sköpuðu sér nokkur góð færi, þá sér í lagi eftir föst leikatriði þar sem Túnis réð ekkert við sterkt lið Englendinga.

Fyrsta markið kom á ellefu mínútunni. Eftir aukaspyrnu skallaði John Stones föstum skalla í átt að markinu, Mouez Hassen varði boltann stórkostlega en beint fyrir fætur Harry Kane sem kom Englandi yfir.

Trippier í baráttunni í kvöld.vísir/getty
Áfram héldu Englendingar að sækja. Jesse Lingard skaut meðal annars í stöngina og England gerði allt hvað þeir gátu til að ná inn öðru markinu en fengu það í bakið.

Eftir fyrirgjöf féll Ben Youssef í teig Englendinga eftir samstuð við Kyle Walker og dómari leiksins, Wilmar Roldan beinti á punktinn. Á punktinn steig Ferjani Sassi sem skoraði framhjá Jordan Pickford.

Staðan var 1-1 í hálfleik og síðari hálfleikurinn var í raun afar leiðinlegur. Englendingum gekk illa að skapa sér færi en einu færin sem þeir fengu komu eftir föst leikatriði.

Það var svo ekki fyrr en í uppbótartíma að sigurmark leit dagsins ljós. Það kom engum á óvart að markið kom eftir hornspyrnu en Harry Maguire skallaði boltann á Kane sem skallaði boltann af fjær í stög og inn. Lokatölur 2-1.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira