Körfubolti

Kanaleit Keflvíkinga loksins lokið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Amin Stevens er rúmlega tveggja metra hár framherji.
Amin Stevens er rúmlega tveggja metra hár framherji. mynd/keflavík
Leit körfuboltaliðs Keflavíkur að Bandaríkjamanni er loksins lokið.

Keflvíkingar hafa samið við framherjann Amin Stevens sem lék í þrjú ár með Florida A&M háskólanum við góðan orðstír.

Eftir að háskólaferlinum lauk hefur Amin spilað í Slóvakíu, Austuríki og nú síðast í Þýskalandi.

Amin er fjölhæfur leikmaður og sterkur í kringum körfuna. Hann frákastar vel og spilar góða vörn segir í fréttatilkynningu á heimasíðu Keflavíkur.

Keflvíkingar sækja Njarðvíkinga heim í 1. umferð Domino's deildarinnar 7. október næstkomandi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×