Erlent

Kanadíska lögreglan birtir myndband af skotárásinni

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Lögreglan í Kanada hefur birt myndband af skotárásinni sem varð við kanadíska þinghúsið í gær.

Myndbandið má sjá hér að neðan en það sýnir nokkur sjónarhorn úr mismunandi öryggismyndavélum í kringum þinghúsið. Lögreglustjóri kanadísku lögreglunnar fer yfir það sem fyrir augu ber.

Tveir létust í árásinni, hermaður sem varð fyrir skoti árásarmannsins og árásarmaðurinn sjálfur sem skotinn var af lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×