Innlent

Kalt og stillt á jólum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Það verður nokkuð kalt í veðri í kvöld og á morgun en vindur verður hægur.
Það verður nokkuð kalt í veðri í kvöld og á morgun en vindur verður hægur. Vísir/Vilhelm
Frost verður um allt land í kvöld, aðfangadagskvöld, og á morgun, jóladag, samkvæmt veðurspá Veðurstofu Íslands.

Vindur verður hægur en spáð er norðlægri eða breytilegri átt í kvöld, 3-8 metrum á sekúndu. Él verða norðan til, einkum við ströndina, en annars verður bjartviðri.

Á morgun er spáð sunnan 5-13 metrum á sekúndu og snjókomu eða éljum vestan til. Hægari vindur verður eystra og úrkomulítið.

Frost verður á bilinu 1-12 stig en kaldast verður inn til landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×