Lífið

Kallið mig barnahvíslara

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ashton.
Ashton. vísir/getty
Leikarinn Ashton Kutcher var gestur Conan O'Brien í gærkvöldi og talaði mikið um föðurhlutverkið en hann eignaðist sitt fyrsta barn, dótturina Wyatt Isabelle, með sinni heittelskuðu, Milu Kunis, fyrir stuttu.

„Þetta er ótrúlegt. Þetta er það besta í heimi,“ sagði Ashton um föðurhlutverkið og bætti við að hann og Mila væru svo heppin að geta tekið sér frí og því væru þau ekki með neinar barnfóstrur. Þá sagði Ashton að hann kynni betur að meta sína eigin foreldra eftir að Wyatt kom í heiminn.

„Um leið og barnið fæddist langaði mig að hringja í foreldra mína og biðjast afsökunar á því að ég vissi aldrei hve mikið þau elskuðu mig.“

Leikarinn segist einnig vera lunkinn pabbi.

„Ég er búin að læra sitthvað um hvað getur róað barn niður. Þannig að mér finnst ég vera barnahvíslari núna.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×