Lífið

Kallaður Thor í Kuala Lumpur: Hafþór Júlíus vann báðar fyrstu greinar mótsins

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
„Hiti og raki fyrir svona stóra menn er mjög varhugaverður. Menn verða að halda sér köldum og drekka gríðarlegt magn af vatni og halda söltum líkamans í jafnvægi til að sporna við ofþornun og til að forðast meiðsli,“ segir Andri Reyr, aðstoðarmaður Hafþórs Júlíusar eða Fjallsins sem keppir um þessar mundir í keppninni Sterkasti maður heims í Kuala Lumpur. Fyrsti keppnisdagur var í dag og leist þeim Andra Rey Vignissyni og Einari Magnúsi Ólafíusyni ekkert á hitann í landinu í dag en hann var kominn vel yfir 30 gráður klukkan níu í morgun.

„Við Einar settum upp plan til að passa á að Hafþór væri með vatnsbrúsa í hönd allan tímann. Við skiptumst á að bera í hann vatnið og kæla hann með öllum tiltækum ráðum. Honum fannst nóg komið oft á tíðum,“ heldur Andri áfram. „Sjálfir fundum við heldur betur fyrir hitanum og vorum orðnir gegndrepa af svita á fyrsta korterinu. En það var bara byrjunin þar sem hitinn átti eftir að hækka þegar líða tók á daginn,“ bætir Einar við.

Sjá einnig: Fjallið borðaði 1,7 kíló af kjöti og ostaköku kvöldið fyrir fyrsta keppnisdag

Þeir Andri og Einar pössuðu vel upp á að drekka nægilega mikið af vatni í 35 stiga hita.
Hafþór Júlíus vann fyrstu keppnisgrein mótsins

Teymið sem samanstendur af þeim Hafþóri, Andra, Einari og foreldrum Hafþórs, vaknaði fyrir sjö í morgun en allar vekjaraklukkur höfðu verið stilltar til þess að engin hætta væri á að hópurinn myndi sofa yfir sig. Fyrsta keppnisgreinin var svokölluð hleðslugrein. Hún fólst í að bera einn 120 kílógramma sekk og tvö 160 kílógramma lyftaradekk en samkvæmt þeim félögum áttu flestir keppendur í miklu basli með greinina. 

„Það voru bara tveir af sex í riðlinum hans Hafþórs sem gátu klárað greinina og að sjálfsögðu var okkar maður annar þeirra,“ segir Andri. Hafþór var fyrstur til að klára greinina eða tæpum sautján sekúndum á undan manninum sem varð í öðru sæti. „Hafþór var ánægður með sigurinn í fyrstu greininni því í svona keppni er hvert stig mikilvægt og gott að byrja vel,“ útskýrir Einar.

Kraftajötuninn Benedikt Magnússon, keppir einnig ytra og gekk honum vel í fyrstu greininni.

„Hann náði að klára 120 kg. sekkin og annað dekkjanna en flýtti sér aðeins of hægt, því hann vildi ekki eyða allri orkunni strax, sem kom svo niður á honum því þegar hann var að ganga með seinna dekkið rann hann út á tíma. Aðeins einn maður í hans riðli náði að klára greinina en það var enginn annar en Zydrunas Savickas, fjórfaldur sterkasti maður heims og núverandi titilhafi.“

Kallaður Thor úti í Kuala Lumpur

Seinni grein þessa fyrsta keppnisdags felst í að velta þremur stærðarinnar hömrum sem vega frá 140 kílóum til 170 kílóa. Greinin er kölluð Norsehammer eða Norræni hamarinn. „Þetta þótti okkur ekki gott nafn en við viljum kalla hana Thorshammer af því að flestir hérna úti kalla Hafþór Thor svo Thorshammer á mun betur við að hans og okkar mati,“ segir Einar. 

„Hafþór var eini keppandinn sem gat klárað þessa þraut.“ Fylltist Fjallið við það miklum eldmóði að sögn félaganna. „Og öskraði að þetta væri ekki Norsehammer heldur Thorshammer við mikla lukku viðstaddra,“ segir Andri.

Benedikt var í þriðja sæti í greininni og kláraði tvo hamra á fínum tíma. Nú á hann ágætis möguleika á að komast í tíu manna úrslitin.

Andri Reyr Vignisson og Einar Magnús Ólafíuson verða augu og eyru Vísis í Kuala Lumpur. Fylgist vel með umfjöllun Vísis um keppnina Sterkasti maður heims 2015.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×