Innlent

Kalla inn rúsínur

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Hörgull er á myndum af vörunni sem verið er að kalla inn. Því fylgir þessi bráðskemmtilega rúsínuhrúga með fréttinni.
Hörgull er á myndum af vörunni sem verið er að kalla inn. Því fylgir þessi bráðskemmtilega rúsínuhrúga með fréttinni. vísir/getty
Kaupás, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur innkallað First Price rúsínur eftir að aðskotahlutur úr plasti fannst hluta framleiðslunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun.

Líkt og áður segir ræðir um rúsínur en þær eru í 250 gramma pakkningum. Númerið sem fylgir strikamerkinu er 7311011074183. Innköllunin nær til allra best fyrir dagsetninga. 

Vöruna hafði verið hægt að kaupa í öllum verslunum Krónunnar og Kjarvals og verslun Nóatúns á Akureyri. Viðskiptavinum sem keypt hafa vöruna í framangreindum verslunum er bent á að neyta eigi rúsínanna heldur farga þeim eða skila í viðkomandi verslun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×