Bíó og sjónvarp

Kaleo með lag í nýjustu stiklu Wolverine

Stefán Árni Pálsson skrifar
Svakaleg stikla.
Svakaleg stikla.
Logan er nýjasta myndin um teiknimyndasögupersónuna Wolverine úr X-Men en Hugh Jackman, Boyd Holbrook og Doris Morgado fara með aðalhlutverkin í kvikmyndinni.

Logan verður frumsýnd þann 3. mars en Wolverine er mjög vinsæl sögupersónu sem á milljónir aðdáenda.

Nýjasta stiklan úr kvikmyndinni kom út rétt í þessu og geta aðdáendur sannarlega verið spenntir.

Það sem vekur helst athygli hér á landi er að hljómsveitin Kaleo á lagið undir stiklunni. Þar má heyra lagið Way Down We Go eins og sjá má hér að neðan.  

Þetta er síðasta kvikmyndin sem Hugh Jackman leikur Wolverine en hann hefur farið með þetta hlutverk í 17 ár. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×