Tónlist

Kaleo á toppnum í átta löndum

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Strákarnir áttu um nóg að snúast með að árita plötur í Amoeba í Los Angeles fyrir helgi.
Strákarnir áttu um nóg að snúast með að árita plötur í Amoeba í Los Angeles fyrir helgi. Vísir/Getty
Rokkhljómsveitin Kaleo gaf út fyrstu breiðskífu sína á alþjóðavísu fyrir helgi. Óhætt er að segja að viðtökurnar hafi verið frábærar en sveitin situr nú í fyrsta sæti á lista yfir jaðartónlist á iTunes í hvorki meira né minna en átta löndum.

Platan heitir A/B og inniheldur fjögur lög af plötunni sem kom út með sveitinni hér á landi fyrir tæpum þremur árum síðan. Hin lögin sex eru nýrri og þar á meðal má finna Way Down We Go og lagið No Good sem notað var í sjónvarpsþáttunum Vinyl. Platan er gefin út af Atlantic Records/Elektra um heim allan.

Allt á uppleið

Eins og kom fram áðan trónir platan á toppnum á jaðarlistum (alternative) iTunes í átta löndum en það eru Kanada, Grikkland, Írland, Lúxemborg, Nýja-Sjáland, Ísrael, Líbanon og Sviss. Platan komst í annað sæti í Suður-Afríku og Rússlandi og í þriðja sætið í Bretlandi og Bandaríkjunum á sama lista.

Fyrir helgi sátu liðsmenn sveitarinnar þeir Jökull, Davíð, Daníel og Rubin í hinni frægu Amoeba plötubúð í Los Angeles og gáfu eiginhandaráritanir.

Kaleo var nýlega á lista hins virta tónlistarblaðs Rolling Stone yfir 10 sveitir sem lesendur yrðu að kynnast.

Sveitin kom nýlega fram í spjallþætti Conan O‘Brien og flutti lagið Way Down Below. Það má sjá hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×