Skoðun

Kaldar kveðjur til opinberra starfsmanna

Elín Björg Jónsdóttir skrifar
Neikvæð viðhorf í garð starfsmanna hins opinbera að undanförnu vekja óneitanlega nokkrar vangaveltur um í hvaða átt samfélag okkar stefnir. Fram til þessa hefur almenn samstaða ríkt um hvert grunnhlutverk ríkisins á að vera. Það er að veita öllum heilbrigðisþjónustu og umönnun sem á þurfa að halda, tryggja öryggi og veita menntun óháð efnahag og búsetu. Þetta er sú samfélagsgerð sem þróuð hefur verið á Norðurlöndunum og fyrir vikið eru lífsskilyrði hvergi betri í heiminum.

Ýmislegt bendir til að samstaða um hvert hlutverk ríkisins eigi að vera sé ekki lengur til staðar. Reglulega hefur gróflega verið vegið að starfsheiðri starfsmanna ríkis og sveitarfélaga – fólks sem einmitt sinnir þeim störfum sem við byggjum samfélagsgerð okkar á. Opinberlega er talað um að leita verði leiða til að minnka réttindi þessa fólks, gefið er í skyn að það sinni ekki störfum sínum sem skyldi og því þurfi að fækka enn frekar.

Yfirgnæfandi meirihluti opinberra starfsmanna sinnir grunnstoðum samfélagsins. Sem dæmi þá manna opinberir starfsmenn lögreglu og slökkvilið, allar heilbrigðisstofnanir landsins, menntastofnanir frá leikskóla og upp í háskóla og sinna allri þeirri þjónustu sem velferðarkerfið veitir. Um 70% starfsmanna hins opinbera eru konur og störf fólksins í almannaþjónustunni er sá grunnur sem við byggjum samfélagsgerð okkar á. Það er hagur heildarinnar að halda úti slíku öryggisneti og það eykur lífsgæði okkar sem þjóðar.

Niðurrif á störfum opinberra starfsmanna er þess vegna í raun niðurrif á okkar samfélagsgerð sem fram til þessa hefur byggst upp á jöfnum rétti allra til menntunar, heilbrigðisþjónustu og mannlegrar reisnar. Við megum ekki fjarlægjast hugsjónina um jöfnuð og hverfa til frekari einstaklingshyggju því félagsleg samheldni skilar samfélaginu mun meiru.

Það er óumdeilt að öflugt velferðarkerfi er grunnur góðra lífsskilyrða okkar og hjarta velferðarkerfisins er fólkið sem innan þess starfar. Þess vegna á starfsfólk hins opinbera betra skilið frá æðstu yfirmönnum sínum en þær köldu kveðjur sem því hafa borist að undanförnu.




Skoðun

Sjá meira


×