Matur

Kaka sem má borða í morgunmat

Eva Laufey Kjaran skrifar
vísir/Evalaufey

Í síðasta þætti af Matargleði útbjó ég þessa einföldu og góðu múslíköku með grísku jógúrti, berjum og ávöxtum. Hollt og gott fyrir líkama og sál.

Múslíkaka með grísku jógúrti, berjum og ferskum ávöxtum 

Múslí

Þetta múslí er mjög einfalt og sniðugt að nota í kökur.

8 dl hafrar


2 dl möndlur

2 dl pekanhnetur

2 dl sólkjarnafræ

2 dl sesamfræ

2 dl eplasafi

1 dl kasjúhnetur

1 dl kókosolía

1 – 2 msk hunang

1 dl kókosmjöl

smá salt

1 dl rúsínur

1 dl chia fræ

100 g smjör

nokkrar döðlur, smátt skornar

Fylling:

1 dós grískt jógúrt

1 msk hunang

2 ástaraldin

Ferskir ávextir og ber t.d. kíví, jarðarber, bláber, hindber og brómber

Aðferð: Hitið ofninn í 180°C. Blandið saman haframjöli, pekanhnetum, möndlum, sólkjarnafræjum og sesamfræjum. Hellið eplasafa og fljótandi kókosólíu út í  og blandið öllu vel saman.  Klæðið bökunarplötu með bökunarpappír og dreifið múslíinu á plötuna.

Bakið í ca. 30 mínútur eða lengur. Fylgist vel með og hrærið nokkrum sinnum í blöndunni á meðan bökunartíma stendur.  Kælið vel áður en þið berið fram. Bætið t.d. þurrkuðum berjum eða kókosflögum við múslíið þegar það kemur út úr ofninum. Bræðið 100 g af smjöri og hrærið saman við múslíið. Hellið blöndunni í eldfast bökumót og bakið við 180°C í 10 mínútur. Kælið í smá stund áður en þið setjið fyllinguna á botninn.

Fylling: Hrærið grísku jógúrti, 2 matskeið af hunangi og kjötinu úr tveimur ástaraldin ávöxtum.  Smyrjið fyllingunni ofan á botninn. Skerið niður ferska ávexti og ber og skreytið kökuna að vild. Sáldrið gjarnan smá kókosmjöli yfir í lokin og berið strax fram.

Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2.  


Tengdar fréttir

Sjúklega gott súkkulaði fondú

Það þarf ekki að vera flókið að útbúa veitingar fyrir vinahópinn og algjör óþarfi að stressa sig korter fyrir boðið. Hér er skotheld uppskrift að ljúffengu súkkulaði fondú sem slær alltaf í gegn og tekur enga stund að búa til.

Haustleg gúllassúpa

Það er fátt betra en matarmikil og bragðgóð súpa á köldum vetrardögum sem yljar manni að innan. Gott nautakjöt, beikon og grænmeti er uppistaðan í þessari súpu sem þið ættuð að prófa.

Kanilsnúðar með kardimommum

Sænskir kanilsnúðar eru vinsælir víða um heim og það er ekki að ástæðulausu, þeir er afskaplega mjúkir og bragðgóðir.

Sjúklega góð blaut súkkulaðikaka

Svíar eru þekktir fyrir ljómandi góðar súkkulaðikökur og hér er uppskrift að ómótstæðilegri súkkulaðiköku með pekanhnetukrönsi.

Karamellupopp að hætti Evu Laufeyjar

Á þriðjudagskvöldum eldar Eva Laufey ljúffenga rétti í Íslandi í dag og hér er uppskrift úr síðasta þætti en þá útbjó Eva meðal annars þetta girnilega popp með saltaðri karamellusósu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×