Fótbolti

Kaiserslautern býður aftur í Jón Daða

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jón Daði á leið til Þýskalands?
Jón Daði á leið til Þýskalands? mynd/viking-fk.no
Þýska knattspyrnufélagið Kaiserslautern hefur gert Viking Stavanger nýtt tilboð í íslenska landsliðsmanninn Jón Daða Böðvarsson.

Frá þessu greinir Aftenbladet, en tilboðið sem norska liðið hafnaði síðast var á bilinu 30-50 milljónir íslenskra króna.

Kaiserslautern virðist ólmt í að fá Jón Daða, en Viking missir hann á frjálsri sölu í lok ársins þar sem samningur hans rennur út.

Kaiserslautern endaði í fjórða sæti þýsku 2. deildarinnar á síðustu leiktíð, en liðið var í baráttunni um sæti í 1. deildinni fram í síðustu umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×