Lífið

Káfar á Fjallinu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Gyðja Collection frumsýnir í dag nýjar heferðarmyndir fyrir herrailminn Vatnajökul. Kraftajötuninn Hafþór Júlíus Björnsson er andlit ilmsins en hann hefur gert það gott síðustu misseri og leikið meðal annars Fjallið í sjónvarpsþáttunum Game of Thrones.

Á einni myndinni sést Sigrún Lilja hjá Gyðju strjúka Hafþóri frygðarlega. Það var þó ekki ætlunin að nota þá mynd í herferðinni.

„Ljósmyndarinn og stílistinn vildu gera prufu og ég var dregin inná sett, í vinnufötunum og engan veginn undirbúin í myndatöku. En svo kom það svona vel út og myndin notuð sem ein af herferðarmyndunum,“ segir Sigrún Lilja.

Myndirnar voru teknar af Írisi Stefánsdóttur en hún er nýlega flutt til Íslands frá Ítalíu. Hefur hún fengið myndir birtar í mörgum tímaritum, til að mynda ítalska Vogue, ELLE, Marie Claire og Vanity Fair.

Gyðja heldur jólaglögg í kvöld í verslun sinni að Bæjarlind í Kópavogi og að sjálfsögðu mætir Fjallið á svæðið.

Vígalegur.
Píndi sig í skyrtu.
Hugsuður.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×