Erlent

Kafa djúpt í líf Lubitz

Vísir/EPA/AFP
Þýska lögreglan hefur hafið viðamikla rannsókn á lífi Andreasar Lubitz, aðstoðarflugmanni German Wings sem flaug Airbus þotu af ráðnum hug á fjallshlíð í Ölpunum á þriðjudag með þeim afleiðingum að 150 manns fórust.

Allt kapp er lagt á að komast að því hvað manninum gekk til en á hljóðupptökum úr klefanum kemur ekkert fram sem varpað getur ljósi á ástæður þess að maðurinn, sem var 28 ára gamall, framkvæmdi voðaverkið. Þýskir miðlar hafa það eftir heimildarmönnum innan lögreglunnar að mikilvæg vísbending hafi þegar litið dagsins ljós en ekki hefur verið greint frá því hver hún sé.

Það hefur þó verið gefið út að Lubitz hafi ekki skilið eftir sig sjálfsmorðsbréf.


Tengdar fréttir

Gríðarleg sorg vegna voðaverks flugmannsins

Saksóknari í Frakklandi segir ekki hægt að tala um sjálfsvíg flugmannsins. Hann hafi myrt 149 manns. Gríðarleg sorg í heimabæ 16 framhaldsskólanema í Þýskalandi sem fórust.

Harmleikur í háloftunum

Þegar 150 manns farast með farþegaþotu í hefðbundnu millilandaflugi í Evrópu, líkt og gerðist í Frönsku ölpunum á þriðjudag, verður fólk sem notar þennan ferðamáta eðlilega slegið og skelkað. Fá orð ná svo utan um harminn sem nístir þá sem atburðurinn snertir beint.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×