Innlent

Kærir úrskurðinn til Hæstaréttar

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Maðurinn var leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness.
Maðurinn var leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness. vísir/anton brink
Verjandi skipverjans sem var í dag úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald hefur kært úrskurðinn til Hæstaréttar. Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem fer með rannsókn málsins, í samtali við fréttastofu. Maðurinn er grunaður um aðild að dauða Birnu Brjánsdóttur. Héraðsdómur Reykjaness féllst einnig á áframhaldandi einangrun yfir manninum.

Skipverjinn er sá sem lögregla telur að hafi ekið Kia Rio bílnum í miðbæ Reykjavíkur umrædda nótt. Talið er að Birna hafi farið upp í bílinn á Laugavegi.

Hinum manninum í málinu, kollega mannsins af Polar Nanoq sem var farþegi í bílnum, verður sleppt í dag en hann hefur þó enn réttarstöðu sakbornings, að sögn Gríms.

Jón H.B. Snorrason, yfirsaksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við fréttastofu í dag að þó að hann vildi ekki fara út í einstaka þætti málsins þá væri maðurinn að sjálfsögðu ekki laus ef hann væri sakaður um manndráp.

„Ef hann væri sakaður um þetta manndráp þá væri hann að sjálfsögðu ekki laus,“ sagði Jón H.B.

Birna Brjánsdóttir sást seinast í eftirlitsmyndavélum við Laugaveg 31 klukkan 05:25 aðfaranótt laugardagsins 14. janúar. Lík hennar fannst í fjörunni við Selvogsvita átta dögum síðar. Lögreglan hefur staðfest að henni hafi verið ráðinn bani.

Jarðarför Birnu fer fram frá Hallgrímskirkju á morgun klukkan 15. Fjölskyldan afþakkar blóm og kransa en bendir þeim á sem vilja minnast hennar að styrkja Slysavarnafélagið Landsbjörg.


Tengdar fréttir

Öðrum skipverjanum sleppt úr haldi

Lögreglan mun ekki fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir báðum skipverjunum sem grunaðir eru um að bera ábyrgð á dauða Birnu Brjánsdóttur, heldur aðeins öðrum þeirra.

Mál Birnu Brjánsdóttur vekur heimsathygli

Fjölmiðlar úti í heimi hafa mikinn áhuga á máli Birnu Brjánsdóttur. Kynningarfulltrúi lögreglunnar hefur ekki kynnst jafn viðamiklum áhuga. Oftast er dregið fram að á Ísland sé friðsælt, hér sé enginn her og lögreglan gangi um óvop




Fleiri fréttir

Sjá meira


×