Lífið

Kærð fyrir ósiðsemi

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Watts ásakaði lögregluna um kynþáttahatur.
Watts ásakaði lögregluna um kynþáttahatur.
Django Unchained-leikkonan Daniele Watts og kærasti hennar, Brian James Lucas, hafa verið kærð fyrir ósiðsamlega hegðun á almannafæri en Watts var handtekin í Los Angeles í september eftir að lögreglu barst tilkynning um ungt par í ástaratlotum í kyrrstæðum bíl.

Watts sakaði lögregluþjónana um kynþáttahatur en hún sagðist ekki hafa gert neitt af sér. Jafnframt sagði hún að lögregluþjónarnir hafi talið hana vera vændiskonu. Lögregluþjónarnir neituðu þessu en vitni hinum megin við götuna sögðust hafa séð parið í ástarleikjum.

Lögregluþjónninn sem handtók Watts segir að hún hefði getað sloppið við allt vesenið ef hún hefði aðeins sýnt skilríki eins og hún var beðin um.

Hann bætti við að hann teldi ásakanir um kynþáttahatur vera „kaldhæðnislegar“, meðal annars í ljósi þess að hann væri sjálfur samkynhneigður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×