Lífið

Kærasti Örnu Ýrar: „Alltaf verið mjög sjálfstæð með svona“

Birgir Olgeirsson skrifar
Egill Trausti Ómarsson og Arna Ýr Jónsdóttir.
Egill Trausti Ómarsson og Arna Ýr Jónsdóttir. Vísir/Facebook
„Þetta hefur verið sirkus,“ segir Egill Trausti Ómarsson kærasti Örnur Ýrar Jónsdóttur sem hefur vakið heimsathygli fyrir að hætta í Miss Grand International í Las Vegas eftir að eigandi keppninnar sagði að hún yrði að grenna sig fyrir lokakvöldið.

Arna Ýr var í viðtali við útvarpsþáttinn Þrjár í fötu á FM957 fyrr í kvöld þar sem hún lýsti martraðarupplifun í Las Vegas.

Sjá einnig: Ókunnug kona á Íslandi bauðst til að borga flug fyrir Örnu til Íslands gegn því að hún hætti keppni

Hún hafi fyrst fengið þau skilaboð frá eiganda keppninnar að hún væri of feit og þyrfti að grenna sig. Hún greindi frá því á Snapchat þar sem hún sagðist ætla að hætta í keppninni ef ekki yrði bakkað með þá kröfu.

Eigandinn varð brjálaður

Hún sagðist því næst hafa fengið eiganda keppninnar og framkvæmdastjóra brjálað upp á móti sér þar sem þeir sögðu hana hafa rústað orðstír keppninnar og hún yrði að laga það með nýjum skilaboðum á Snapchat þar sem henni var sagt að segja að um misskilning væri að ræða.

Arna Ýr myndaði því ný skilaboð á Snapchat en á meðan stóðu eigandi og framkvæmdastjóri keppninnar fyrir framan hana.

Hún fann að það hefði ekki verið rétt ákvörðun og margir skynjuðu að ekki væri allt með felldu. Meðal annars íslensk kona sem Arna Ýr þekkti ekki. Sú setti sig í samband við Örnu og sagðist skynja að hún væri í ömurlegum aðstæðum. Bauðst hún til að borga flugfarið heim til Íslands fyrir Örnu gegn því að hún myndi hætta í keppninni.

Alveg sama hversu hátt er boðið

Sem Arna Ýr gerði en þá fóru eigandi keppninnar og framkvæmdastjóri að biðja hana um að vera áfram og segja að hún væri nokkuð sigurstrangleg og fengi þar með 40 þúsund dollara fyrir sigurinn, en Arna lét ekki bjóða sér það og sagði það engu máli skipta hversu mikið henni yrði boðið, hún væri hætt.

„Ég vissi alltaf hvað var að gerast. Ég var sá fyrsti sem hún hafði samband við þegar þetta átti sér allt stað,“ segir Egill Trausti í samtali við Vísi.

„Óþægilegt að vera heima“

Aðspurður hvort ekki hafi verið erfitt að fylgjast með þessu úr fjarska segir hann svo vera.

„Það er óþægilegt að vera heima þegar eitthvað svona kemur upp á. Eina sem maður getur gert er að veita stuðning í gegnum síma,“ segir Egill.

„Alltaf verið mjög sjálfstæð“

Hann segir Örnu Ýr vera afar staðfasta manneskju sem lætur ekki vaða yfir sig. „Hún hefur alltaf verið mjög sjálfstæð með svona og það er aldrei hægt að segja henni til um neitt. Hún hefur alltaf verið mjög ánægð með sjálfa sig og ég vissi að hún myndi tækla þetta sjálf,“ segir Egill. 


Tengdar fréttir

Ætlar ekki að taka þátt í keppninni ef eigendur standa við skilaboðin

Arna Ýr Jónsdóttir fegurðardrottning fékk skilaboð frá eigenda fegurðarsamkeppni sem hún tekur þátt í í Las Vegas að hún þyrfti að grenna sig fyrir lokakvöldið. Ef eigendur keppninnar taka skilaboðin ekki til baka ætlar hún að hætta við að taka þátt í keppninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×