Viðskipti erlent

Kæra Alibaba fyrir að selja eftirlíkingar

ingvar haraldsson skrifar
Jack Ma, stofnandi Alibaba.
Jack Ma, stofnandi Alibaba. vísir/epa
Kering, eigandi tískuvörumerkjanna Gucci og YvesSaintLaurent, hefur kært Alibaba fyrir að selja eftirlíkingar af merkjavöru. Kínverski netsölurisinn er í kærunni sagt hafa kvatt til og hagnast á sölu á eftirlíkingunum. AP greinir frá.

Sem dæmi um slíkt sé að þegar orðinu „knockoff“, sem þýða má sem eftirlíking, sé slegið inn í leitarvél Alibaba stingur leitarvélin á að bæta við orðinu „handbag“ eða handtaska, við leitina.



Alibaba
segjast saklausir af öllum ásökunum. Í yfirlýsingu segist fyrirtækið vinna með eigendum fjölda vörumerkja við að vernda hugverkarétt þeirra. Alibaba segist harma að Kering hafi valið að lögsækja fyrirtækið í stað þess að vinna með þeim á uppbyggilegan hátt.

Þá segir Alibaba að tvö þúsund starfsmenn starfi hjá fyrirtækinu í baráttunni gegn eftirlíkingum og hugverkaþjófnaði og fyrirtækið hafi eytt 20 milljörðum króna í þá baráttu á árunum 2013 til 2014.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×