Handbolti

KA/Þór semur við þjálfara

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gunnar og Martha handsala samninga sína við Siguróla M. Sigurðsson, formann handknattleiksdeildar KA.
Gunnar og Martha handsala samninga sína við Siguróla M. Sigurðsson, formann handknattleiksdeildar KA. Mynd/Aðsend
Handknattleikslið KA/Þór í Olís-deild kvenna hefur samið við Gunnar Erni Birgisson um að stýra liðinu á næsta tímabili. Gunnar þekkir vel til hjá Þór/KA, en hann var aðstoðarþjálfari liðsins á síðustu leiktíð.

Spilandi aðstoðarþjálfari Þórs/KA verður Martha Hermannsdóttir, en hún var langmarkahæsti leikmaður liðsins á síðustu leiktíð, með 155 mörk í 22 leikjum.

Þess má geta að eiginmaður Mörthu, Heimir Örn Árnason, er annar tveggja þjálfara karlaliðs Akureyrar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×