Íslenski boltinn

KA gerði góða ferð í Breiðholtið og kom sér á toppinn | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
KA-menn eru komnir á toppinn.
KA-menn eru komnir á toppinn. vísir/stefán
KA skaust á toppinn í Inkasso-deildinni með 0-2 sigri á Leikni í Breiðholtinu í dag.

Stefán Karlsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á Leiknisvelli í dag og tók meðfylgjandi myndir.

KA-menn hafa unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum og eru komnir með 13 stig, jafn mörg og erkifjendurnir í Þór en markatala þeirra gulu er betri.

Húsvíkingurinn ungi Ásgeir Sigurgeirsson kom KA í 0-1 á 6. mínútu eftir slæm mistök Ingvars Ásbjörns Ingvarssonar í vörn Leiknis og þannig var staðan í hálfleik.

Ásgeir var aftur á ferðinni á 48. mínútu þegar Halldór Kristinn Halldórsson braut á honum og fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt.

Einum færri áttu Leiknismenn erfitt uppdráttar og varamaðurinn Halldór Hermann Jónsson gulltryggði sigur gestanna með góðu skoti á 77. mínútu. Fleiri urðu mörkin ekki og KA fagnaði góðum útisigri.

Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan.

Leiknismenn hafa gefið eftir að undanförnu eftir góða byrjun á tímabilinu en Breiðhyltingar hafa tapað þremur leikjum í röð í deild og bikar.

vísir/stefán



Fleiri fréttir

Sjá meira


×