Handbolti

KA byrjaði einvígið um Olís deildina á sigri

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
KA-menn stefna upp í efstu deild
KA-menn stefna upp í efstu deild Vísir/Ernir
KA hafði betur gegn HK í fyrsta leik í einvígi liðanna í umspili um laust sæti í Olís deild karla á næsta tímabili.

Heimamenn í KA voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 12-10 og sigruðu leikinn með fjórum mörkum, 24-20.

Áki Egilsnes átti frábæran leik fyrir KA og skoraði 10 mörk, næstur kom Sigþór Árni Heimisson með fjögur. Í liði HK var Kristján Ottó Hjálmsson atkvæðamestur með 6 mörk.

KA sat hjá í undanúrslitunum þar sem liðið endaði í 2. sæti Grill 66 deildar en HK hafði betur gegn Þrótti í undanúrslitunum.

Sigra þarf þrjá leiki til þess að vinna einvígið, næsti leikur fer fram í Digranesi á þriðjudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×