Salmar hyggst kaupa Arnarlax
Norska fyrirtækið Salmar hyggst kaupa fyrirtækið Arnarlax að fullu og hefur tilkynnt til norsku kauphallarinnar að það hafi aukið hlut sinn í fyrirtækinu um tvo komma fimm milljarða króna. Talsmaður Icelandic Wildlifefund gagnrýnir að seljendur sé ekki íslenska þjóðin heldur fáeinir einstaklingar sem hafi eignast hluti í fyrirtækinu fyrir nánast ekki neitt.