Tala látinna komin upp í 42

Opinber útför átján þeirra sem létust er Morandi-brúin í Genúa hrundi var haldin í ítölsku borginni í dag. Tala látinna er komin upp í 42 þar sem þriggja manna fjölskylda og maður fundust grafin í bifreiðum sínum í rústunum í nótt. Fjölskyldur margra fórnarlamba höfnuðu boði um opinbera útför vegna reiði í garð stjórnvalda.

16
00:46

Vinsælt í flokknum Fréttir