Eldgosið í Öræfajökli mun öflugra en áður var talið
Gögn hafa sýnt að eldgosið í Öræfajökli árið 1362 var mun öflugra en áður var talið. Hópur jarðvísindamanna er nú við rannsóknir á og í kringum jökulinn þar sem sýnum er safnað. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort hækka eigi viðbúnaðarstig vegna hugsanlegs eldgoss í jöklinum.