Vinna hörðum höndum við að ljúka hugbúnaðaruppfærslu
Bandaríska samgönguráðuneytið rannsakar nú samþykki flugmálayfirvalda í Bandaríkjunum fyrir því að hleypa Boeing 737 Max 8 flugvélunum á markað. Boeing vinnur að því að uppfæra hugbúnað flugvélanna sem kenningar eru uppi um að beri ábyrgð á tveimur mannskæðum flugslysum.