Gabríel – Stjörnuhröp

Tónlistarmaðurinn Gabríel frumsýnir hér glænýtt myndband við lagið Stjörnuhröp. Honum til halds og trausts eru rapparinn Opee og söngvarinn Valdimar Guðmundsson. Mikil dulúð hefur verið í kringum Gabríel síðan hann kom fram á sjónarsviðið. Hann vill ekki láta nafns síns getið og hefur gert ýmsar ráðstafanir til að halda því leyndu. Hingað til hefur hann aðeins komið fram á ljósmyndum, en gerir nú frávik frá þeirri reglu með þessu nýja myndbandi. Leikstjórn, eftirvinnsla og tæknibrellur voru í höndum Davíðs Jóhannessonar. Rakel Mjöll Leifsdóttir sá um listræna stjórnun. Myndbandið var framleitt af Gabríel í samstarfi við Ólaf Pál Torfason, Opee.

21694
04:12

Vinsælt í flokknum Tónlist