Kvikmyndin EINN - nýtt sýnishorn

Vísir frumsýnir hér sýnishorn úr svörtu gamanmyndinni EINN, sem verður frumsýnd í byrjun mars. EINN fjallar um kvikmyndagerðarmanninn Helga sem er að gera sína fyrstu mynd í fullri lengd. Helgi byggir handrit myndarinnar á sínu eigin lífi og nákomnum persónum. Þegar framleiðendur koma við sögu vilja þeir sjá breytingar á handritinu. Hægt og rólega fara breytingarnar að hafa bein áhrif á líf Helga. Hann missir þá tök á veruleikanum og kemur sér og sínum í óborganlegar aðstæður.

Leikstjóri er Elvar Gunnarsson. Handritshöfundar eru Elvar Gunnarsson og Guðfinnur Ýmir. Með aðalhlutverk fara Arnþór Þórsteinsson, Guðfinnur Ýmir, Þorsteinn Gunnar Bjarnason, Darren Foreman, Vivian Didriksen Ólafsdóttir, Guðný Lára Árnadóttir og María Ellingsen. Framleiðendur eru Valur Hermannsson, Guðfinnur Ýmir, Canon, Rósa Ásgeirsdóttir og Elvar Gunnarsson.

4372
00:52

Næst í spilun: Íslenskar kvikmyndir

Vinsælt í flokknum Íslenskar kvikmyndir