Borgríki - sýnishorn 2

Glænýtt sýnishorn úr harðsoðna spennutryllinum Borgríki. Mikil eftirvænting ríkir fyrir frumsýningu myndarinnar sem er næstkomandi föstudag, 14. október.

Borgríki er nútíma glæpasaga í reykvískum raunveruleika. Serbneskur bifvélavirki missir ófætt barn sitt í árás þegar meðlimir íslensks glæpahrings ráðast inn á heimili hans. Í hefndaraðgerðum sínum gegn þeim tvinnast örlög hans saman við lögreglukonu sem ýtt er út á ystu nöf, spilltan yfirmann hennar í fíkniefnadeild lögreglunnar og glæpakóng sem er að missa tökin á veldi sínu.

Leikstjóri Borgríkis er Ólafur de Fleur Jóhannesson en hann framleiðir myndina einnig ásamt Kristínu Andreu Þórðardóttur. Ingvar E. Sigurðsson tekur einnig þátt í framleiðslu myndarinnar og fer með eitt helsta hlutverkið. Ágústa Eva Erlendsdóttir, Sigurður Sigurjónsson og Zlatko Krickic fara með önnur aðalhlutverk ásamt fleirum af þekktustu leikurum landsins.

Byrjað er að huga að endurgerð myndarinnar í Hollywood, en þar hafa menn mikinn áhuga á glæpamyndum frá Norðurlöndunum. Myndin verður frumsýnd í Laugarásbíó, Smárabíó og Háskólabíó ásamt Borgarbíó Akureyri og fleiri kvikmyndahúsum á landsbyggðinni. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu myndarinnar, borgriki.is.

3566
01:54

Næst í spilun: Íslenskar kvikmyndir

Vinsælt í flokknum Íslenskar kvikmyndir