Reynir sterki: Beyond Strength - sýnishorn

Reynir Örn Leósson var merkilegur maður og lífshlaup hans ótrúlegt. Hann var alla tíð utangarðsmaður í leit að viðurkenningu frá samfélaginu, sem hann hlaut aldrei. Foreldrar hans vildu hvorugt hafa hann hjá sér og ólst hann því upp við ótrúlega erfiðar aðstæður. Margir álitu hann vera svindlara, fyllibyttu og ræfil. Þegar litið er til baka og afrek hans skoðuð er ótrúlegt til þess að hugsa að hann hafi aldrei fengið neina viðurkenningu. Hann á heimsmet í heimi aflrauna, sem standa enn. Framtíðarsýn hans var ótrúleg og uppfinningar hans þykja mjög merkilegar enn þann dag í dag. Leikstjórn: Baldvin Z. Aðalviðmælendur: Erla Sveinsdóttir ,Leó Svanur Reynisson, Linda Reynisdóttir, Einar Örn Einarsson, Bíbi Ólafsdóttir og Fríður Leósdóttir. Handritshöfundar: Baldvin Z og Birgir Örn Steinarsson. Framleiðandi: Baldvin Z. Meðframleiðendur: Abbý Hafliða, Hörður Rúnarsson, Ólafur Arnalds, Heiða Sigrún Pálsdóttir og Dísa Anderiman. Stjórn kvikmyndatöku: Jóhann Máni Jóhannsson. Klipping: Úlfur Teitur Úlfsson. Tónlist: Eberg. Reynir sterki: Beyond Strength er frumsýnd á föstudaginn í Smárabíói, Háskólabíói og Borgarbíói, Akureyri.

14705
02:02

Næst í spilun: Íslenskar kvikmyndir

Vinsælt í flokknum Íslenskar kvikmyndir