Grimmd - sýnishorn

Kvikmyndin Grimmd verður frumsýnd þann 21. október en með aðalhlutverk í myndinni fara þau Margrét Vilhjálmsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Um er að ræða íslenska spennumynd sem segir frá því þegar tvær ungar stelpur hverfa sporlaust af leikvelli í Árbænum. Stúlkurnar finnast látnar í Heiðmörk og í einbeittri rannsókn í leit að sökudólgum fléttast saman nokkrar sögur þegar hræðileg atriði í máli stúlknanna koma upp á yfirborðið. Þjóðfélagið fer á annan endann vegna málsins og reyndustu rannsóknarlögreglumenn landsins, þau Edda Davíðsdóttir (Margrét Vilhjálmsdóttir) og Jóhannes Schram (Sveinn Ólafur Gunnarsson) eru kölluð til. Þau eru bæði staðráðin í að leysa málið en þurfa að etja kappi við tímann þegar hvimleið atvik úr fortíðinni líta dagsins ljós og erfið rannsóknin flækist enn frekar. Leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar er Anton Sigurðsson sem gerði kvikmyndina Grafir & bein árið 2014.

6054
01:47

Næst í spilun: Íslenskar kvikmyndir

Vinsælt í flokknum Íslenskar kvikmyndir