Fyrrverandi þingmenn geta átt erfitt með að fá vinnu
Fyrrverandi þingmenn geta átt erfitt með að fá vinnu eftir að þingstörfum lýkur. Hagfræðingur sem hætti á þingi fyrir fimm árum segist hafa sótt um vel á annað hundrað störf án árangurs. Annar segir örfáa af tuttugu manna hópi fyrrverandi þingmanna vera komna með fasta vinnu þremur árum síðar.