Svona fólk (1970-1985) - sýnishorn

Hommar og lesbíur lifðu í þögn og ótta langt fram á síðustu öld. Örlagaríkt viðtal í tímaritinu Samúel 1975 við Hörð Torfason um kynhneigð hans hratt af stað ófyrirsjáanlegri atburðarás og markar upphaf réttindabaráttu homma og lesbía á Íslandi. Svona fólk – fyrri hluti rekur aðstæður og upphaf þessarar baráttu fram til 1985, sögur fólks sem daglega tókst á við ríkjandi gildismat og fordóma í von um að gera Ísland byggilegt fyrir sig og sína. Fyrri hluti Svona fólks fyrir kvikmyndahús var frumsýndur í Bíó Paradís 27. nóvember. Einnig verða unnir fimm þættir úr efninu. Leikstjóri er Hrafnhildur Gunnarsdóttir.

169
02:56

Næst í spilun: Íslenskar kvikmyndir

Vinsælt í flokknum Íslenskar kvikmyndir