Vilja að ný Hríseyjarferja gangi eingöngu fyrir rafmagni
Sú hugmynd hefur verið rædd á meðal Hríseyinga að ný Hríseyjarferja gangi eingöngu fyrir rafmagni. Skipstjóri núverandi ferju segir að kominn sé tími á endurnýjun á ferjunni og tvímælalaust eigi þá að horfa til rafmagnsferju.