Borgin styrkir 75 einstaklinga og hópa

Myndhöggvarafélagið í Reykjavík var útnefnt listahópur Reykjavíkur 2019 við hátíðlega athöfn í Iðnó í dag. Pawel Bartoszek formaður menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs kynnti útnefninguna sem og styrkja borgarinnar til sjötíu og fimm einstaklinga og hópa upp á samtals sextíu og eina milljón króna en um 160 aðilar sóttu um styrki til borgarinnar upp á yfir 200 milljónir króna. Upphæðir styrkjanna eru misháar, allt frá rúmum hundrað þúsund krónum upp fjórar milljónir króna.

6
00:34

Vinsælt í flokknum Fréttir