Wow Air tapaði 4,8 milljörðum króna
Wow Air tapaði 4,8 milljörðum króna fyrir skatta og fjármagnsliði á tímabilinu frá júlí 2017 til júlí 2018. Þetta kemur fram í fjárfestakynningu frá fyrirtækinu Pareto Securities sem annast skuldabréfaútgáfu til að endurfjármagna Wow Air en frá þessu er greint í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu í dag.