Atli Rafn krefst 13 milljóna frá Borgarleikhúsinu
Atli Rafn Sigurðarson, leikari hefur stefnt Leikfélagi Reykjavíkur og leikhússtjóra Borgarleikhússins vegna uppsagnar en Atla Rafni var sagt upp í desember tvöþúsund og sautján þegar rúm vika var í frumsýningu leikverksins Medeu þar sem Atli átti að fara með eitt af aðalhlutverkunum.