Besta körfuknattleikskona landsins snýr aftur
Besta körfuknattleikskona landsins, Helena Sverrisdóttir, snýr aftur í íslenska körfuboltann. Hún er búin að rifta samningi sínum við ungverska liðið Cegled. Sambýlismaður hennar Finnur Atli Magnússon gékk í haust til liðs við KR en Helena vill ekki svara því hvort hún gangi til liðs við sitt gamla félag, Hauka.