Féll á lyfjaprófi
Oddur Rúnar Kristjánsson leikmaður körfuknattleikslið Vals féll á lyfjaprófi og á yfir höfði sér fjögurra ára keppnisbann. Knattspyrnufélagið Valur staðfesti þetta í samtali við íþróttadeild í dag og fordæmir alla ólöglega lyfjanotkun í tengslum við íþróttir.