Alls áttatíu í einangrun hér á landi smitaðir af covid-19

Átta til viðbótar greindust með covid-19 innanlands í gær. Alls eru nú áttatíu í einangrun hér á landi, smitaðir af covid-19. Enginn af þeim ríflega sex hundruð sem skimaðir voru á Akranesi í gær var smitaður af veirunni. Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar fundar með sóttvarnayfirvöldum síðdegis í dag um hvort ráðast eigi í sambærilega skimun víðar á landsbyggðinni.

15
02:49

Vinsælt í flokknum Fréttir