Kosningar fóru fram í skugga sprengjuárása
Þingiskosningum í Afganistan lauk í dag. Talning stendur yfir og er áætlað að niðurstöður liggi fyrir innan tuttugu daga. Kosningarnar fóru fram í skugga fjölda sprengjuárása í höfuðborginni Kabúl og víðar um landið þar sem tugir hafa fallið.