85 þúsund börn dáið úr vannæringu
Samtökin Save The Children áætla að allt að 85 þúsund börn undir fimm ára aldri hafi dáið úr vannæringu í Jemen á undanförnum árum. Framkvæmdastjóri samtakanna í Bretlandi segir styrjöldina í Jemen mestu mannúðarkrísu okkar tíma.