Vegfarendur skilji ekki umferðarmerki um forgang
Umferðarmerki sem sýnir hvor akstursstefna á forgang þykir ekki nógu skýrt til notkunar við einbreiðar brýr á Íslandi. Hjá Vegagerðinni er til skoðunar að breyta hönnun merkisins til að taka af allan vafa um hvort fólk á að aka eða bíða.